Þinn lykill að gervigreind

Agentis innleiðir og framleiðir snjallar lausnir sem létta undir með starfsfólki og bæta upplifun viðskiptavina þinna.

Gervigreind sem skilur þinn rekstur

Við smíðum lausnir sem tala tungumálið þitt. Frá snjöllum spjallmennum til sérhæfðra gervigreindarlausna í innri kerfum, við finnum réttu tæknina fyrir þínar áskoranir.

Bættu þjónustu með starfrænum ráðgjafa

Enginn rekstur er eins. Við veljum tæknina sem þjónar ykkar markmiðum best, hvort sem það er að nýta leiðandi mállíkön eða smíða sérsniðnar lausnir frá grunni.

Við samþættum gervigreind við alla snertifleti rekstrarins. Hvort sem það er að bjóða viðskiptavinum upp á gervigreindarspjall sem veitir upplýsingar og framkvæmir aðgerðir, eða að veita starfsfólki gervigreindartól til þess að auka afköst. Markmiðið er að skapa verðmæti í hverju skrefi.

Samtöl12
Leyst48
Jón JónssonViðskiptavinur

Hæ, eru opnunartímar...

ChatKitAI

Góðan dag! Við erum opin frá 9-17...

Anna SigurðsdóttirViðskiptavinur

Hvar finn ég upplýsingar um...

ChatKitAI

Þú finnur vörulýsingar á...

Ólafur MagnússonViðskiptavinur

Get ég pantað beint hérna?

ChatKitAI

Já, ég get hjálpað þér að...

Gervigreind sem framkvæmir

MCP tæknin brúar bilið milli spjallmenna og innri kerfa svo viðskiptavinir geti klárað málin beint í spjallinu.

Lifandi tenging við kerfin

Gefðu gervigreindinni öruggan aðgang að vörulistum, birgðastöðu og pöntunarsögu í rauntíma svo hún viti alltaf hvað er til.

Aðgerðir, ekki bara orð

Gerðu notendum kleift að setja vörur í körfu, byrja greiðslu eða bóka tíma án þess að yfirgefa spjallgluggann.

Spjall í stað smella

Viðskiptavinir sleppa við flókin valmyndakerfi og leita, velja og versla á mannamáli sem styttir leiðina að kaupum.

AI Agent Lausnir

Við smíðum sérhæfða AI Agenta sem auka afköst og einfalda flókin verkefni. Þeir virka sem öflug viðbót við þitt teymi.

Sjálfvirkni með gervigreind

AI agentar eru sjálfstæð verkfæri sem meta aðstæður og taka ákvarðanir. Þeir nýta gervigreind til að læra af gögnum, laga sig að breytingum og grípa til aðgerða í rauntíma.

Þessar lausnir vinna þvert á kerfi og geta starfað sjálfstætt eða sem hluti af stærri heild. Við smíðum agenta sem sjá um verkin og styðja við vöxt fyrirtækisins á öllum stigum.

AI Agent
5 verkefni
56 mín sparaðar
Reikningavinnsla15 mín

Skráði 47 reikninga í bókhaldskerfi

ÚtboðsvöktunÍ vinnslu

Fylgist með Ríkiskaupum og dregur saman...

Gagnasamþætting23 mín

Samræmdi gögn úr Excel, pósti og vefkerfi

Viðskiptasamskipti18 mín

Svaraði 34 fyrirspurnum úr pósthólfi

SkýrslugerðBíður

Tekur saman mánaðarlega samantekt...

Algengar spurningar

Ef þú finnur ekki svarið við spurningunni þinni eða þér vantar frekari upplýsingar, þá getur þú sent okkur skilaboð hér.

Við sérhöfum okkur í hugbúnaðarlausnum sem nýta gervigreind. Það getur verið allt frá gervigreindar spjalli inn í viðskiptaferlum, í þínum innri kerfum eða sérsmíðuðum AI agentum sem framkvæma verkefni sjálfstætt. Við vinnum náið með ykkur til að skilja þarfir og markmið og þróa lausn sem skilar raunverulegu virði.
Verðlagningin tekur mið af umfangi og flækjustigi. Við erum að byggja upp okkar orðspor og bjóðum því upp á sveigjanleika til að gera ykkar hugmynd að veruleika.
Ef þú ert ekki viss um hvað er mögulegt, þá erum við hér til að hjálpa þér að kanna og finna bestu leiðina til að nýta gervigreind í þínu fyrirtæki.
Við veljum tæknina sem hentar verkinu. Við tökum mið af því tækniumhverfi sem er nú þegar til staðar hjá þér og veljum þá leið sem skilar mestum árangri fyrir þinn rekstur.
Við bjóðum upp á stuðning og viðhaldsþjónustu eftir að verkefni fer í loftið og oft er það partur af þróunarferlinu. Við tökum við spurningum, lagfærum og uppfærum eftir þörfum. Markmiðið er að tryggja að lausnin haldi áfram að skila virði og aðlagi sig að breyttum þörfum.